Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   sun 17. mars 2019 12:00
Ívan Guðjón Baldursson
Piatek hélt með Arsenal í æsku
Mynd: Getty Images
Krzysztof Piatek kom inn í ítalska boltann líkt og stormsveipur og er búinn að gera 27 mörk í 30 leikjum með Genoa og AC Milan.

Piatek hefur vakið áhuga margra félaga á sér og er orðinn gríðarlega vinsæll meðal ítalskra knattspyrnuáhugamanna fyrir markheppni sína og byssufagnið sitt.

„Ég hélt með Arsenal í æsku. Ég elskaði stílinn hans Wenger og leit upp til leikmanna eins og Thierry Henry og Dennis Bergkamp," sagði Piatek við Tuttosport.

„Þetta er orðinn ávani og færir mér góða lukku þannig ég ætla klárlega ekki að breyta fagninu á næstunni. Fólk hérna á Ítalíu elskar þetta og ég elska að vera hérna. Það er gott veður og góður matur."

Piatek er 23 ára gamall og búinn að spila tvo A-landsleiki fyrir Pólland.

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner