Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 17. desember 2022 10:18
Brynjar Ingi Erluson
Griezmann til Man Utd? - Mörg félög vilja Gakpo
Powerade
Antoine Griezmann til Man Utd?
Antoine Griezmann til Man Utd?
Mynd: Getty Images
Cody Gakpo er eftirsóttur
Cody Gakpo er eftirsóttur
Mynd: Getty Images
Mohammed Kudus er orðaður við Everton
Mohammed Kudus er orðaður við Everton
Mynd: Getty Images
Jobe Bellingham, bróðir Jude, gæti farið í stærra lið á Englandi
Jobe Bellingham, bróðir Jude, gæti farið í stærra lið á Englandi
Mynd: Getty Images
Þá er komið að slúðurpakkanum þennan ágæta laugardag en einn besti leikmaður heimsmeistaramótsins er orðaður við Manchester United.

Manchester United er að íhuga tilboð í Antoine Griezmann (31), leikmann Atlético Madríd, en heimsmeistarinn hefur átt afar gott mót með Frökkum í Katar. (Mediafoot)

Real Madrid er komið í baráttuna um Cody Gakpo (23), leikmann PSV, en hann hefur einnig verið orðaður við Manchester United og Newcastle United. (Mirror)

Man Utd vill fá Gakpo, sem skoraði þrjú mörk með Hollendingum á HM, en félagið vill fá hann inn í stað Cristiano Ronaldo. (Telegraph)

Wolves er að reyna að fá Isco (30), leikmann Sevilla, en þessi fyrrum miðjumaður Real Madrid, er einnig í sigtinu hjá Juventus, Napoli og Aston Villa. (Todofichajes)

Þetta gæti orðið annasamur gluggi hjá Wolves, sem vill fá sex leikmenn í janúar. Julen Lopetegui, nýr stjóri félagsins, vill bæta fleiri breskum leikmönnum við hópinn. (Times)

Aaron Wan-Bissaka (26), leikmaður Manchester United, er einn þeirra sem er á lista hjá Wolves. (Express og Star)

Sofyan Amrabat (26), stjarna Marokkó á HM, er eftirsóttur af mörgum stórliðum um Evrópu, en Liverpool og Tottenham eru meðal þeirra liða, sem hafa áhuga á honum eftir frammistöðu hans á HM. Þetta segir bróðir hans. (De Telegraaf)

Everton ætlar í baráttuna um Mohammed Kudus (22), miðjumann Ajax, í janúar. (Ekrem Konur)

Georgíumaðurinn Kvicha Kvaratskhelia (21), er að vekja áhuga margra félaga, en Newcastle United ætlar að reyna að fá hann í janúar. (Times)

Adrien Rabiot (27), miðjumaður Juventus og franska landsliðsins, vill fara til Barcelona. (Sport)

Newcastle United, Middlesbrough og Sunderland hafa öll áhuga á að fá Jobe Bellingham (17) frá Birmingham City, en hann er yngri bróðir enska landsliðsmannsins Jude Bellingham. (Teamtalk)

Leicester, Wolves og West Ham eru meðal þeirra liða sem hafa áhuga á Azzedine Ounahi (22(, leikmanni Angers og marakkóska landsliðsins. Frammistaða hans á HM hefur vakið verðskuldaða athygli. (Sky Sports)

Bandaríski miðjumaðurinn Malik Tillman (20), hefur gefið í skyn að hann vilji vera áfram hjá Rangers í Skotlandi ef félagið nær ekki samkomulagi við Bayern München næsta sumar. (Times)

Real Madrid hefur mikinn áhuga á hinum 17 ára gamla Vitor Rique en hann spilar sem framherji hjá brasilíska félaginu Cruzeiro. Barcelona, Paris Saint-Germain og Chelsea eru einnig í kapphlaupinu um leikmanninn. (AS)

Independiente del Valle hefur hafnað tilboði Manchester United í Kendry Paez (15), en sá kemur frá Ekvador. (Olé)
Athugasemdir
banner
banner