Sergio Ramos og Ronaldinho mættust nokkrum sinnum í El Clasico þegar Ronaldinho lék með Barcelona og Ramos með Real Madrid.
Ronaldinho ákvað að rifja upp þegar félagarnir mættust í El Clasico. Ronaldinho spurði hvort að Ramos myndi eftir ákveðnum leik milli kappanna, gott ef Ronaldinho á ekki við þegar hann fékk standandi lófatak fyrir frammistöðu sína á Santiago Bernabeu, heimavelli Real.

Leikmenn Real Madrid réðu ekkert við Ronaldinho í þeim leik.
Ramos sagðist muna eftir því en sagðist hugsa hlýrra til baka til sumarsins 2007 þegar Real Madrid vann sinn 30. meistaratitil.
Real Madrid vann titilinn á innbyrðis stigum gegn Barcelona það vorið. Liðin enduðu bæði með 76 stig í deildinni.
Just some friendly banter between two legends 😂 pic.twitter.com/BTXWu3PXUb
— ESPN FC (@ESPNFC) June 18, 2021
Athugasemdir