Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
   lau 18. júní 2022 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Bale bætt á lista yfir goðsagnir
Gareth Bale.
Gareth Bale.
Mynd: EPA
Það er búið að bæta Gareth Bale á sérstakan lista yfir goðsagnir hjá spænska stórveldinu Real Madrid.

Á vefsíðu Real Madrid má nálgast sérstakan lista yfir goðsagnir hjá félaginu og er Bale núna á þeim lista ásamt Marcelo og Isco, sem eru einnig að yfirgefa félagið í sumar.

Bale var ekki tebolli allra í spænsku höfuðborginni og sumir efuðust um vinnuframlag hans til félagsins, en það má svo sannarlega segja að hann sé goðsögn hjá Real Madrid.

Titlarnir sem Bale vann með Real Madrid
Meistaradeildin: 2014, 2016, 2017, 2018, 2022.
Spænska úrvalsdeildin: 2017, 2020, 2022.
Spænski bikarinn: 2014.
Spænski ofurbikarinn: 2017.
Ofurbikar Evrópu: 2014, 2016, 2017.
HM félagsliða: 2014, 2016, 2017, 2018.
Athugasemdir
banner
banner
banner