Harry Maguire, varnarmaður Leicester, er ekki með riftunarverð í nýjum samningi sínum hjá félaginu. Sky Sports greinir frá þessu í dag.
Maguire skrifaði undir nýjan fimm ára samning við Leicester á dögunum en í sumar var hann orðaður við Manchester United.
Talið er að United hafi lagt fram 60 milljóna punda tilboð í Maguire en því var hafnað.
Þar sem ekkert riftunarverð er í nýja samningnum þá er það undir Leicester komið hvort félagið samþykki tilboð í Maguire í framtíðinni eða ekki.
Maguire var öflugur í vörn Englendinga á HM í sumar en ferill hans hefu verið ævintýri líkast undanfarin ár.
Athugasemdir