Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fim 18. nóvember 2021 20:35
Brynjar Ingi Erluson
Neymar ekki með um helgina - Ramos mögulega í hóp
Neymar var ekki með Brasilíu gegn Argentínu á dögunum
Neymar var ekki með Brasilíu gegn Argentínu á dögunum
Mynd: Getty Images
Brasilíski sóknarmaðurinn Neymar verður ekki með Paris Saint-Germain um helgina gegn Nantes í frönsku deildinni á meðan Sergio Ramos er vongóður um að vera í hópnum.

Neymar er meiddur í læri og var ekki með Brasilíu gegn Argentínu í undankeppni HM á dögunum.

Hann verður því ekki með PSG gegn Nantes um helgina og gæti mögulega misst af leiknum gegn Manchester City í Meistaradeildinni í næstu viku.

Spænski miðvörðurinn Sergio Ramos hefur ekki enn sparkað í bolta fyrir PSG frá því hann kom á frjálsri sölu frá Real Madrid í sumar en hann er vongóður um að vera í hópnum um helgina samkvæmt L'Equipe.

Marco Verratti og Presnel Kimpembe gætu einnig náð leiknum um helgina en þó er möguleiki á að þeir verði hvíldir fyrir stórleikinn gegn City.
Athugasemdir
banner
banner
banner