Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 18. desember 2022 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Ísland í dag - Þór mætir KF og Völsungur spilar við Dalvík
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Það eru tveir leikir á dagskrá á Íslandi í dag þar sem leikið er í Kjarnafæðismótinu í Boganum á Akureyri.


Þór mætir KF í hádegisleiknum í riðli 1 áður en Völsungur og Dalvík/Reynir eigast við í riðli 2 í kvöld.

Þór er með þrjú stig eftir þægilegan sigur gegn varaliði KA í fyrstu umferð. KF er að spila sinn fyrsta leik á mótinu.

Völsungur og Dalvík/Reynir eru að mætast í fyrstu umferð mótsins en KA trónir á toppi riðilsins með sex stig og markatöluna 14-0.

Leikir dagsins:
12:15 KF - Þór 
20:00 Völsungur - Dalvík/Reynir


Athugasemdir
banner
banner