Jose Mourinho, stjóri Tottenham, var skiljanlega gríðarlega svekktur eftir tap gegn Dinamo Zagreb í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar í gærkvöldi.
Tottenham vann fyrri leikinn 2-0 en kastaði því forskoti frá sér í seinni hálfleiknum í gær. Leikurinn endaði 2-0 fyrir króatíska liðið og fór í framlengingu. Í framlengingunni fullkomnaði Mislav Orsic þrennu sína og lokatölur 3-0.
Mourinho var svekktur eftir leikinn út í sitt lið en hann hrósaði andstæðingnum.
Hann fór meira að segja inn í klefa Dinamo Zagreb eftir leikinn og óskaði þeim til hamingjum.
Hér fyrir neðan má sjá myndband af því.
Sjá einnig:
Myndband: Átta mínútna viðtal við Mourinho eftir tapið í kvöld
Just moments after defeat. Class from José Mourinho 👏#UELpic.twitter.com/tDUldyiPYs
— Football on BT Sport (@btsportfootball) March 18, 2021
Athugasemdir