Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 19. ágúst 2018 17:31
Ívan Guðjón Baldursson
Einkunnir Brighton og Man Utd - Bailly þristaður
Mynd: Getty Images
Brighton fékk Manchester United í heimsókn í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni.

Glenn Murray og Shane Duffy skoruðu á fyrsta hálftímanum fyrir heimamenn áður en Romelu Lukaku minnkaði muninn. Pascal Gross tvöfaldaði svo forystu Brighton rétt fyrir leikhlé.

Rauðu djöflarnir komust lítið áleiðis framhjá skipulagðri vörn heimamanna og náðu aðeins að skora eitt mark í seinni hálfleik. Paul Pogba gerði það úr vítaspyrnu undir lok uppbótartímans.

Sky Sports gaf leikmönnum einkunnir eftir leikinn og er Lukaku eini leikmaður Man Utd sem fær yfir 5, að undanskildum varamönnum.

Shane Duffy, Pascal Gross, Solly March og Glenn Murray voru bestir í liði Brighton og fengu allir áttur. Restin af liðinu fékk 7, að undanskildum Lewis Dunk sem fór meiddur af velli eftir aðeins 20 mínútur.

Brighton: Ryan (7), Montoya (7), Dunk (6), Duffy (8), Bong (7), Propper (7), Stephens (7), Gross (8), March (8), Knockaert (7), Murray (8).
Varamenn: Balogun (7), Kayal (), Locadia ().

Man Utd: De Gea (5), Young (4), Lindelof (4), Bailly (3), Shaw (5), Pereira (4), Fred (5), Pogba (5), Martial (5), Mata (4), Lukaku (6).
Varamenn: Rashford (6), Lingard (6), Fellaini (6).
Athugasemdir
banner
banner