Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 19. nóvember 2021 19:23
Victor Pálsson
Howe missir af leik Newcastle - Greindist með veiruna
Mynd: Getty Images
Eddie Howe verður ekki á hliðarlínunni á morgun er Newcastle og Brentford eigast við í ensku úrvalsdeildinni.

Þetta var staðfest nú í kvöld en Howe greindist með COVID í dag og verður því fjarri góðu gamni.

Þetta átti að verða fyrsti leikur Newcastle undir stjórn Howe en hann tók við af Steve Bruce nýlega.

Gengi Newcastle hefur verið ömurlegt á tímabilinu en liðið hefur enn ekki unnið deildarleik eftir 11 umferðir.

Howe mun því fylgjast með þessari viðureign í sjónvarpinu en leikið er á St. James' Park, heimavelli Newcastle.

Athugasemdir
banner
banner
banner