Undirbúningstímabilið í íslenska boltanum er í fullum gangi. Í dag er leikið í Reykjavíkurmóti karla, Fótbolta.net mótinu og Kjarnafæðismótinu.
Í Reykjavíkurmótinu spila Íslandsmeistarar Vals gegn Leikni klukkan 18:15 og eftir þann leik mætast Víkingur R. og Fjölnir. Báðir leikir eru auðvitað í Egilshöll.
Það er leikur í B-deild Fótbolta.net mótsins þar sem Selfoss og Grótta eigast við. Leikurinn átti að fara fram í gær en var frestað vegna veðurs.
Í Kjarnafæðismótinu mætast síðan Höttur/Huginn og Dalvík/Reynir inn í Boganum á Akureyri. Leikurinn hefst klukkan 17:15.
Leikir dagsins:
Reykjavíkurmótið - A riðill:
18:15 Valur - Leiknir R. (Egilshöll)
20:15 Víkingur R. - FJölnir (Egilshöll)
Fótbolta.net mótið - B deild, riðill 2:
14:00 Grótta - Selfoss (Vivaldivöllurinn)
Kjarnafæðismót - B deild:
17:15 Höttur/Huginn - Dalvík/Reynir (Boginn)
Athugasemdir