KR er á toppi deildarinnar eftir ótrúlegan endurkomusigur á Val sem sitja í 9. sæti deildarinnar með sjö stig. Viðtalið við Hannes Þór Halldórsson, svör Óla Jó í viðtali við Stöð2 Sport á laugardaginn og gengi KR og Vals í sumar er eitt af því sem fólk hefur skoðun á , á Twitter í dag.
Hér að neðan má sjá brot af umræðunni á Twitter.
Hannes er sár en þjálfarinn hans var ekki beint að hjálpa hans málstað hér. Hljómar ekki eins og hann hafi gefið markverðinum high five og svo beðið að heilsa Gylfa. https://t.co/AFh73syvB9
— Henry Birgir (@henrybirgir) June 19, 2019
Get vel skilið gremju Hannesar Þórs og hann hafi verið á köflum hálf klökkur í viðtölum eftir leikinn í kvöld. Illa vegið að honum af sumum aðilum í aðdraganda leiksins. Þekki ekki Hannes af neinu öðru en fagmennsku.
— Guðmundur Hilmarsson (@GummiHilmars) June 19, 2019
Kannski hefur umræðan um Hannes farið úr böndunum. Stærsta stjarnan í Pepsi Max á minni lífsleið mun alltaf fá meiri umræðu en “Average Joe”. Áhuginn á Pepsi Max er í sögulegu hámarki, þökk sé stjörnum eins og honum.
— Hörður S Jónsson (@hoddi23) June 19, 2019
Maður sem fær sjaldan credit, Atli Sigurjónsson hefur spilað eins og engill síðustu vikur, hans helsti aðdáandi fylgist með stoltur þarna uppi ❤️
— HrafnkellFreyr (@hrafnkellfreyr) June 19, 2019
Greyið Hannes “Þrumuþjófur” Halldórsson fær aldrei boðskort í brúðkaup aftur
— Daníel Már (@djaniel88) June 20, 2019
Ef ég væri Óli Jó þá myndi ég gera quit game and exit og ekki save-a og byrja aftur 15.okt í fyrra.
— Björgvin Stefán (@bjorgvinpeturs) June 19, 2019
Vaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaali! https://t.co/fZyvNv3Khz
— Daníel Rúnarsson (@danielrunars) June 19, 2019
Ég get alveg skilið þennan frábæra markmann að vera fúlan við einhverja fjölmiðla EN hann verður að átta sig á því að þjálfarinn hans var EKKI að hjálpa honum neitt með fáranlegum svörum eftir ÍBV leikinn þegar hann var spurður útí þetta mál #pepsimaxdeildin #fotboltinet #lexasig
— Halldór G Jónsson (@Dorijons1) June 20, 2019
Þegar leikmenn segja eitthvað heimskulegt þá er þeim gert að biðjast afsökunar. Á þá ekki að ætlast til að þú gerir slíkt hið sama @HoddiMagnusson , þvílíka vitleysan sem vall upp úr þér í umræðunni um Hannes. #fotboltinet
— Ólafur Malmquist (@Malmquist40) June 20, 2019
Þegar leikmenn segja eitthvað heimskulegt þá er þeim gert að biðjast afsökunar. Á þá ekki að ætlast til að þú gerir slíkt hið sama @HoddiMagnusson , þvílíka vitleysan sem vall upp úr þér í umræðunni um Hannes. #fotboltinet
— Ólafur Malmquist (@Malmquist40) June 20, 2019
Það er Óli Jóh sem ýtti Hannesi út í þennan PR bobba. Hefði getað afgreitt og lokað málinu í viðtalinu þegar hann sagðist ekki hafa hugmynd um hvenær Hannes tognaði og sagðist “ekki vita hvernig svona mál gengju fyrir sig” en gaf málinu þess í stað byr #PRkludur #fotboltinet
— Ólafur Nielsen (@olafurnielsen) June 19, 2019
Hver ber ábyrgð á því að Haukur Páll hafi farið aftur inná völlinn í gær eftir að hafa fengið höfuðáverka og það sást vel í TV að sjúkraþjálfari Vals gaf til kynna að það þyrfti að skipta honum útaf? #Fotboltinet
— Arnar Daði Arnarsson (@arnardadi) June 20, 2019
Hér má sjá Willum Þór Þórsson (KR) og Brynjar Níelsson (Valur) ræða örstutt endurkomu KR áður en sá fyrrnefndi leysti þann síðarnefnda af í sæti forseta. #fotboltinet pic.twitter.com/DQLdty2VJU
— Jóhann Óli Eiðsson (@jedissson) June 20, 2019
Nýtt Innkast! Viðtal ársins og vandræði Vals og Stjörnunnar til umræðu #fotboltinethttps://t.co/U4OAodIMAu
— Fótbolti.net (@Fotboltinet) June 19, 2019
Þekki Hannes ekki neitt og minn stuðningur mun eflaust ekki skipta hann neinu en þessi umræða með þetta brúðkaup er komin út í þvælu. Afhverju spyr enginn hvernig stemmarinn var í brúðkaupinu?? Hannes ég skil þig 100% og hefði sjálfur alltaf farið #fotboltinet
— Styrmir Sigurðsson (@StySig) June 19, 2019
Bóas er með skilaboð til allra KR-inga nær og fjær #Allirsemeinn pic.twitter.com/AQNXaf71xr
— Sindri Snær Jensson (@sindrijensson) June 19, 2019
Það var mikið að eitthvað sem eitthvað er til í komi fram í þessu máli. Mér finnst ýmsir spekingar hafa lagst ansi lágt í að rægja einn besta markvörð Íslands undanfarin ár.#fotboltinet https://t.co/NaETMXFipl
— Guðmundur Jónsson (@gudmjons) June 19, 2019
Innkast in the making eftir ótrúlega leiki og viðtal ársins. 📻 #fotboltinet pic.twitter.com/Exk2ipMN98
— Tómas Þór Þórðarson (@tomthordarson) June 19, 2019
Erfitt að finna meiri fagmann en @hanneshalldors - þetta er galin umræða og lífið er alltof stutt til að fagna ekki hátíðardögum sinna nánustu. Vel gert Hannes! #fotboltinet #PepsiMaxDeildin #lífið https://t.co/KSRYAYKQI6
— Ingvar Örn Ákason (@hryssan) June 19, 2019
Verð að segja að þessar pælingar að margreyndur og virtur landsliðsmaður setji klásúlu í samning sinn við ríkjandi Íslandsmeistara um að hann verði að komast í giftingu vinar síns no matter what, vera einhver mesta þvæla sem ég hef lesið. #comeOn
— Benedikt Gretarsson (@bennigretars) June 19, 2019
Það er í alvöru fólk sem segir að PepsiMax deildin sé leiðinleg. Þvílíkir jólasveinar...elska þetta!
— Jóhann Már Kristinsson (@joikidda) June 19, 2019
Einhverjir snillingar sögðu hér á forritinu að nú gætu menn hætt að efast um Óla Jó og Valsmenn væru komnir í gang. Það var heimaleikur gegn ÍBV með fullri virðingu fyrir þeim. Staðan er ennþá GRAFALVARLEG á Hlíðarenda. Aftur á móti stórkostlegur sigur hjá KR. Meistarabragur?
— Rikki G (@RikkiGje) June 19, 2019
Beitir átti frábæra Alisson markvörslu þarna í lokin. Frábær leikur, deildin fjörug í ár. Til hamingju KR. Heitir. #fotboltinet
— Magnús Sigurbjörnsson (@sigurbjornsson) June 19, 2019
Magnþrungið viðtal við Hannes Þór í kvöld sló út Lilju Alfreðsdóttur í Kastljósi er hún svaraði dónalegum, drukknum, fullum Miðflokksmönnum
— Marteinn Ægisson (@MarteinnAegis) June 19, 2019
#fotboltinet #miðflokkur #PepsiMaxDeildin
Þeir sem töluðu um að KR væri með allt of gamalt lið til geta orðið meistarar, eru þeir enn á sömu skoðun? #fotboltinet #Allirsemeinn
— Sigurður Svavarsson (@Siggivs) June 19, 2019