Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 20. september 2018 14:30
Magnús Már Einarsson
Liverpool ekki búið að ræða við Milner um nýjan samning
Mynd: Getty Images
Liverpool hefur ekki ennþá rætt við James Milner um nýjan samning en hann verður samningslaus næsta sumar.

Milner hefur verið mjög öflugur á miðjunni hjá Liverpool í upphafi tímabils.

Liverpool hefur unnið sex fyrstu leiki sína á tímabilinu og Milner hefur nokkrum sinnum verið besti maður liðsins í þeim leikjum.

Hinn 32 ára gamli Milner verður samningslaus sumar og því kemur það mörgum stuðningsmönnum á óvart að félagið sé ekki byrjað að ræða nýjan samning en Daily Mail greinir frá þessu í dag.

Milner hefur verið hjá Liverpool frá því árið 2015 en hann kom til félagsins frá Manchester City.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner