Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 21. júní 2020 15:47
Brynjar Ingi Erluson
Þýskaland: Guðlaugur Victor í sigurliði
Guðlaugur Victor Pálsson
Guðlaugur Victor Pálsson
Mynd: Getty Images
Guðlaugur Victor Pálsson spilaði allan leikinn er Darmstadt vann Wehen Wiesbaden 3-1 í 33. umferð þýsku B-deildarinnar í dag.

Guðlaugur Victor, sem er fæddur árið 1991, hefur gegnt lykilhlutverki í liði Darmstadt á tímabilinu.

Hann hefur sex sinnum verið valinn í lið umferðarinnar og verið hreint út sagt magnaður en þetta er annað tímabil hans með Darmstadt.

Hann lék allan leikinn í 3-1 sigri á Wiesbaden í dag. Liðið er í 4. sæti með 49 stig, þremur stigum á undan Bochum þegar ein umferð er eftir.

Það er ljóst að Darmstadt á ekki möguleika á að fara upp um deild en miðað við frammistöðuna á tímabilinu þá ætti ekki að koma á óvart ef eitthvað af A-deildarliðunum skoði hann í sumar.
Athugasemdir
banner
banner
banner