Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 21. júlí 2022 21:34
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Lengjudeildin: Selfyssingar klikkuðu á tveimur vítaspyrnum
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þremur leikjum er lokið í Lengjudeildinni í kvöld.

Selfoss fékk HK í heimsókn í toppslag. Selfyssingar komust yfir strax á 6. mínútu þegar Adam Örn Sveinbjörnsson skallaði boltann í netið. Undir lok fyrri hálfleiks fékk Gary Martin tækifæri til að jafna en Arnar Freyr Ólafsson varði vítaspyrnuna frá honum.

Stefán Ingi Sigurðarson jafnaði metin í upphafí síðari hálfleiks en Arnþór Ari kom HK aftur yfir. Selfyssingar fengu annað tækifæri að jafna metin af vítapunktinum en Gonzalo Zamorano setti boltann yfir markið.

HK er á toppnum en Fylkir er stigi á eftir en Árbæingarnir unnu 3-2 sigur á KV í kvöld. Þá vann Afturelding heimamenn í Grindavík í ótrúlegum markaleik.

Grindavík 4 - 5 Afturelding

0-1 Javier Ontiveros Robles ('4 )
1-1 Tómas Leó Ásgeirsson ('16 , víti)
2-1 Dagur Ingi Hammer Gunnarsson ('42 )
2-2 Sigurður Gísli Bond Snorrason ('51 )
2-3 Elmar Kári Enesson Cogic ('52 )
3-3 Dagur Ingi Hammer Gunnarsson ('59 )
3-4 Jökull Jörvar Þórhallsson ('79 )
4-4 Kenan Turudija ('83 )
4-5 Marciano Aziz ('89 )

Lestu um leikinn

Selfoss 1 - 2 HK
1-0 Adam Örn Sveinbjörnsson ('6 )
1-0 Gary John Martin ('41 , misnotað víti)
1-1 Stefán Ingi Sigurðarson ('55 )
1-2 Arnþór Ari Atlason ('69 )
1-2 Gonzalo Zamorano Leon ('82 , misnotað víti)

Rautt spjald: Ívar Örn Jónsson , HK ('81) Lestu um leikinn

KV 2 - 3 Fylkir
1-0 Magnús Snær Dagbjartsson ('14 )
1-1 Nikulás Val Gunnarsson ('30 )
2-1 Samúel Már Kristinsson ('43 )
2-2 Arnór Gauti Jónsson ('51 )
2-3 Þórður Gunnar Hafþórsson ('72 )

Lestu um leikinn


Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner