Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 21. desember 2020 22:22
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Lampard hrósar Silva og segir Werner marki frá skriði
Mynd: Getty Images
Frank Lampard, stjóri Chelsea, var til viðtals eftir 3-0 sigur Chelsea gegn West Ham í kvöld. Tammy Abraham skoraði tvö mörk undir lok leiks til að innsigla sigur heimamanna í Chelsea. Áður hafði Thiago Silva skorað mark fyrir Chelsea.

Thiago Silva er 36 ára gamall og hefur staðið sig vel með Chelsea. Hann hefur ma.a. skorað tvö mörk.

„Ég man að ég spilaði 36 ára gamall í úrvalsdeildinni og ég gat ekki spilað eins og hann núna," sagði Lampard.

Timo Werner hefur ekki skorað í síðustu sjö byrjunarliðsleikjum sínum með Chelsea. Lampard tjáði sig um þýska framherjann.

„Timo er á þessum kafla, það er óheppilegt en hann er að komast í færi og þegar það fyrsta dettur mun hann fara á skrið. Tammy og Oli koma með aðra hluti. Tammy gerði hluti í dag sem við þurfum á að halda," sagði Lampard.
Athugasemdir
banner
banner