Jón Daði Böðvarsson er í byrjunarliði Íslands í leiknum gegn Nígeríu á Heimsmeistaramótinu í Rússlandi í dag.
Þetta verður því hans fyrsti leikur á HM þar sem hann kom ekkert við sögu í leiknum gegn Argentínu í fyrstu umferðinni.
Þetta verður því hans fyrsti leikur á HM þar sem hann kom ekkert við sögu í leiknum gegn Argentínu í fyrstu umferðinni.
Þetta eru ekki einungis stórtíðindi fyrir Jón Daða heldur einnig fyrir félagslið hans, Reading í Englandi því Jón Daði er ekki nema annar leikmaður í sögu félagsins sem spilar á HM.
Bandaríkjamaðurinn, Bobby Convey var sá fyrsti í sögu Reading til að spila á HM þegar hann lék með þjóð sinni á HM 2006.
Fylgstu með beinni textalýsingu frá leiknum á Fótbolta.net
Athugasemdir