Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mán 22. júní 2020 14:30
Magnús Már Einarsson
Schneiderlin á leið til Nice
Mynd: Getty Images
Morgan Schneiderlin, miðjumaður Everton, er á leið til Nice í frönsku úrvalsdeildinni.

Hinn þrítugi Schneiderlin er mættur til Frakklands og hann er búinn í læknisskoðun hjá Nice.

Schneiderlin á eitt ár eftir af samningi sínum við Everton en hann er nú á förum.

Schneiderlin kom til Everton frá Mancheser United í janúar 2017 á 24 milljónir punda.

Á þessu tímabili hefur Schneiderlin spilað 18 leiki en meiðsli hafa sett strik í reikninginn.
Athugasemdir
banner
banner
banner