Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 22. ágúst 2021 14:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
White veikur og því ekki með í dag
Mynd: Getty Images
Það er Lundúnarslagur kl 15:30 í dag er Arsenal og Chelsea mætast á Emirates vellinum, heimavelli Arsenal.

Það var búist við því að nýjasti leikmaður Arsenal, Ben White, yrði í liðinu í dag en hann mun ekki vera með vegna veikinda.

Það eru margir leikmenn frá hjá Arsenal en ásamt White eru Eddie Nketia og Thomas Partey tæpir. Pierre-Emerick Aubameyang hefur náð sér af Covid en fjórir aðrir leikmenn eru fjarverandi vegna Covid.

Christian Pulisic leikmaður Chelsea er með Covid og verður því ekki með í dag. Kante og Ziyech eru byrjaðir að æfa af fullum krafti og líklegt að þeir verði í hópnum í dag.
Athugasemdir
banner
banner
banner