Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 23. mars 2021 21:11
Victor Pálsson
England: Daníel Leó ónotaður varamaður í góðum sigri
Mynd: Getty Images
var í leikmannahóp Blackpool í kvöld sem spilaði við Peterborough í ensku þriðju deildinni.

Daníel hefur misst af síðustu leikjum Blackpool vegna meiðsla og svo af síðasta leik þar sem kærasta hans eignaðist barn.

Hann var þó mættur aftur í leikmannahópinn í kvöld er liðið vann virkilega góðan 3-1 heimasigur á Peterborough sem er í öðru sæti.

Daníel kom þó ekki við sögu í leiknum en gat fagnað mikilvægum stigum með liðsfélögum sínum.

Blackpool er í sjötta sætinu eftir sigurinn sem er umspilssæti um laust sæti í næst efstu deild.
Athugasemdir
banner
banner