Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 23. mars 2021 14:21
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Györ, Ungverjaland
Ísak varð 18 ára í dag - Enginn afmælisssöngur „sem betur fer"
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ísak Bergmann Jóhannesson fagnar átján ára afmælisdegi sínum með U21 árs landsliðinu. Landsliðið er saman komið á hóteli í borginni Györ í Ungverjalandi. Það undirbýr sig undir fyrsta leik gegn Rússlandi á fimmtudag en liðið tekur þátt í lokakeppni Evrópumótsins.

Ísak er leikmaður IFK Norrköping og sagði hann þetta í annað sinn sem hann fagnar afmælisdegi sínum þegar landsliðsverkefni er í gangi.

„Já, það gerðist líka 2019," sagði Ísak. Miklar líkur verða að teljast að þetta gerist oftar á ferlinum ef landsleikjagluggar verða áfram undir lok marsmánaðar.

Er einhver afmæliskaka í tilefni dagsins?

„Nei, engin kaka eða slíkt. Það er leikur á fimmtudaginn!"

En afmælissöngur?

„Haha, nei, og sem betur fer ekki," sagði Ísak.
Athugasemdir
banner
banner