Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 23. apríl 2021 09:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ísak Bergmann velur draumaliðið sitt - Tveir Gíslar
Lið Ísaks. Smelltu á myndina til að sjá hana stærri.
Lið Ísaks. Smelltu á myndina til að sjá hana stærri.
Mynd: Draumaliðsdeild Eyjabita
Ísak Bergmann
Ísak Bergmann
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Skagamaðurinn Ísak Bergmann Jóhannesson er leikmaður IFK Norrköping í Svíþjóð. Hann er búinn að velja draumaliðið sitt í Draumaliðsleik Eyjabita.

Opnunarleikur mótsins er eftir viku og þarf að vera búinn að velja rúmum klukkutíma fyrir fyrsta leik.

Smelltu hér til að taka þátt í leiknum!

Ísak stillir upp í 4-4-2 fyrir fyrstu umferð mótsins.

„Gísli í Blikum verður bestur og Gísli í ÍA verður efnilegastur," segir Ísak.

„Þeir raða inn stigum í sumar. Báðir með de Bruyne takta í sér. Ingi Þór Sigurðsson (byrjar á bekknum) mun svo koma mest á óvart og leggja upp og skora nokkur."

„Þórir mun stjórna miðjunni hjá FH og malla inn stigum fyrir mig."
segir Ísak. Liðið hans heitir einfaldlega Akranes FC, lítið verið að flækja hlutina þar.

Smelltu hér til að taka þátt í leiknum!

Sjá einnig:
Valgeir Valgeirs velur draumaliðið sitt
Oliver Stefáns velur draumaliðið sitt
Stefán Teitur velur draumaliðið sitt
Bjarni Mark velur draumaliðið sitt
Valgeir Lunddal velur draumaliðið sitt
Athugasemdir
banner
banner
banner