Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 23. maí 2019 08:30
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Iwobi: Átti ekki von á því að ná svona langt
Alex Iwobi.
Alex Iwobi.
Mynd: Getty Images
Alex Iwobi og félagar hans í Arsenal eru nú að undirbúa sig fyrir úrsitaleikinn í Evrópudeildinni þann 29. maí næstkomandi þar sem þeir mæta grönnum sínum í Chelsea, úrslitaleikurinn fer fram í Bakú í Aserbaídsjan.

„Það er frábært að fá tækifæri til að spila svona stóran úrslitaleik, sem ungum dreng gat mér aldrei dottið í hug að ég myndi ná svona langt," sagði Iwobi.

„Að vinna bikar er alltaf sérstök stund, það er auðvitað markmiðið okkar að reyna vinna eins marga og við getum, sagði Iwobi.

Iwobi hefur verið mjög traustur í liði Arsenal í vetur og er búinn að koma við sögu í alls 50 leikjum, 10 af þessum leikjum lék hann í Evrópudeildinni.


Athugasemdir
banner