Pétur Örn Gunnarsson, sjúkraþjálfari hjá íslenska landsliðinu, hélt í dag til Íslands, þar sem hann fer í aðgerð vegna meiðsla á hönd sem hann varð fyrir eftir hjólreiðaslys.
Pétur slasaðist í hjólreiðatúr í Kabradinka í Rússlandi í síðustu viku.
Pétur slasaðist í hjólreiðatúr í Kabradinka í Rússlandi í síðustu viku.
„Vonir eru bundnar við að Pétur komi aftur til starfa á meðan á þátttöku Íslands stendur," segir á Twitter síðu KSÍ.
Nokkrir sjúkraþjálfarar starfa með íslenska liðinu á HM en auk Péturs eru þar Friðrik Ellert Jónsson, Rúnar Pálmarsson og Stefán Stefánsson.
Í teyminu hjá KSÍ eru einnig læknarnir Haukur Björnsson og Sveinbjörn Brandsson.
Hér að neðan má sjá myndir af Pétri eftir hjólreiðatúrinn í síðustu viku.
Athugasemdir