Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
   sun 23. september 2018 16:39
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Logi Ólafs: Höldum okkur til hlés í þeirri umræðu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Logi Ólafsson, þjálfari Víkings, gat leyft sér að vera sáttur eftir 4-0 sigur á Keflvíkingum í Pepsi-deildinni í dag. Sæti Víkings í Pepsi-deildinni er tryggt eftir þennan sigur.

Lestu um leikinn: Keflavík 0 -  4 Víkingur R.

„Þetta er léttir og ánægjulegt hversu vel við spiluðum í seinni hálfleik. Við spiluðum á móti góðu liði Keflavíkur í fyrri hálfleik," sagði Logi í viðtali eftir leikinn.

„Keflvíkingar voru sérstaklega gimmir í fyrri hálfleik en þegar við fórum að spila rétt, að setja boltann aftur fyrir vörnina hjá þeim, þá búum við til tækifæri. Ég dreg engan dul á það að Keflvíkingar stóðu sgi vel lengst af í leiknum."

Verður Logi áfram sem þjálfari Víkings?

„Við höfum ákveðið að halda okkur til hlés í þeirri umræðu þar til að þessu móti lýkur."

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni en þar ræðir Logi nánar um meiðsli leikmanna sinna. Milos Ozegovic og Arnþór Ingi Kristinsson voru báðir fluttir af vellinum um borð í sjúkrabíl.
Athugasemdir
banner