Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   sun 24. mars 2019 09:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Aurier og Dier meiddir - Óvíst með þátttöku gegn Liverpool
Mynd: Getty Images
Liverpool mætir Tottenham á Anfield eftir viku. Á föstudag fór Eric Dier meiddur af velli þegar England vann sannfærandi 5-0 sigur á Tékkum.

Í gær fór Serge Aurier meiddur af velli í 3-0 sigri Fílabeinsstrandarinnar gegn Rwanda. Aurier var fyrirliði Fílabeinsstrandarinnar á meðan hann var inn á en fór af velli eftir hálftíma leik vegna tognunnar.

Kieran Trippier er líklegastur til að byrja hjá Tottenham í hægri bakvarðarstöðunni og liðið hefur einnig Kyle Walker-Peters upp á að hlaupa ef allt fer á versta veg.

Dier er kominn til baka til Tottenham og er endurhæfingarferli þegar hafið. Óvíst er hvort hann verði tilbúinn fyrir átökin næstu helgi.

Liverpool er á toppi deildarinnar en Tottenham situr í þriðja sæti deildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner