Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 24. júní 2020 20:40
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mjólkurbikarinn: Þór áfram eftir framlengingu gegn Reyni
Sigurður Marinó gerði sigurmarkið úr vítaspyrnu.
Sigurður Marinó gerði sigurmarkið úr vítaspyrnu.
Mynd: Raggi Óla
Þór 2 - 1 Reynir S.
0-1 Elton Renato Livramento Barros ('18 )
1-1 Sölvi Sverrisson ('78 )
2-1 Sigurður Marinó Kristjánsson ('117 , víti)
Lestu nánar um leikinn

Þórsarar eru komnir áfram í 16-liða úrslit Mjólkurbikars karla eftir erfiðan leik gegn Reyni Sandgerði á Akureyri.

Elton Renato Livramento Barros kom Reyni yfir á 18. mínútu og héldu Reynismenn forystunni alveg fram á 78. mínútu. Þá jafnaði Sölvi Sverrisson fyrir Þór og þurfti að framlengja.

Í framlengingunni fengu Þórsarar vítaspyrnu sem Sigurður Marinó Kristjánsson skoraði úr.

Lokatölur 2-1 fyrir Þór og þeir komnir áfram í 16-liða úrslit, en ekki var það auðvelt gegn Reyni úr 3. deild. Reynismenn gáfu Akureyrarliðinu hörkuleik.

Sjá einnig:
Mjólkurbikarinn: KA kjöldró níu leikmenn Leiknis - Spenna á Grenivík
Athugasemdir
banner
banner