Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fös 24. júní 2022 11:30
Elvar Geir Magnússon
Leikur U23 kvenna við Eista sýndur í beinni vefútsendingu í dag
Leikurinn hefst klukkan 16 að íslenskum tíma
Jörundur Áki Sveinsson stýrir U23 liðinu í dag.
Jörundur Áki Sveinsson stýrir U23 liðinu í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Frá æfingu í Eistlandi.
Frá æfingu í Eistlandi.
Mynd: KSÍ
U23 landslið kvenna mætir A-landsliði Eistlands í vináttuleik í dag, föstudag, og hefst hann kl. 16:00 að íslenskum tíma.

Leikurinn fer fram í hinni skemmtilegu borg Pärnu við Eystrasaltið og verður sýndur í beinni vefútsendingu.

Þorsteinn H. Halldórsson og Jörundur Áki Sveinsson völdu hópinn fyrir leikinn og Jörundur Áki mun stjórna íslenska liðinu. Eistland mun tefla fram A-landsliði í leiknum, sem verður skráður sem A-landsleikur.

Fótbolti.net heyrði í Davíð Snorra Jónassyni, sem er aðstoðarþjálfari U23 liðsins, áðan og það er mikil blíða í Eystrasaltinu og góður gír í hópnum.

U23 landslið kvenna hefur einu sinni áður mætt A landsliði, en það var árið 2016 þegar íslenska liðið mætti pólska A landsliðinu og gerðu liðin 1-1 jafntefli (einnig skráður A landsleikur). Þess utan hefur liðið leikið tvo U23 leiki, gegn Skotlandi ytra árið 2012 og gegn Póllandi í Kórnum í febrúar 2015.

Hópurinn:
Andrea Rut Bjarnadóttir - Þróttur R.
Arna Eiríksdóttir - Þór/KA
Ásdís Karen Halldórsdóttir - Valur
Áslaug Dóra Sigurbjörnsdóttir - Selfoss
Auður Sveinbjörnsdóttir Scheving - Afturelding
Barbára Sól Gísladóttir - Selfoss
Birta Georgsdóttir - Breiðablik
Dagný Pétursdóttir - Víkingur R.
Diljá Ýr Zomers - Häcken
Gyða Kristín Gunnarsdóttir - Stjarnan
Hlín Eiríksdóttir - Pitea
Ída Marín Hermannsdóttir - Valur
Karen María Sigurgeirsdóttir - Breiðablik
Katla María Þórðardóttir - Selfoss
Sóley María Steinarsdóttir - Þróttur R.
Sólveig Jóhannesdóttir Larsen - Afturelding
Tinna Brá Magnúsdóttir - Fylkir
Unnur Dóra Bergsdóttir - Selfoss
Athugasemdir
banner
banner
banner