Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 24. ágúst 2021 14:34
Elvar Geir Magnússon
Kurt Zouma á leið til West Ham - Chelsea gerir tilboð í Kounde
Mynd: Getty Images
Enskir fjölmiðlar greina frá því að West Ham sé að ganga frá samkomulagi við varnarmanninn Kurt Zouma.

Zouma hefur náð samkomulagi við West Ham um fimm ára samning en kaupverðið er 30 milljónir evra.

Sagt er að hann fari í læknisskoðun á morgun.

HInn afar vel tengdi íþróttafréttamaður Fabrizio Romano segir að eftir þessar fréttir muni Chelsea gera formlegt tilboð í varnarmanninn Jules Kounde hjá Sevilla.

Sagt er að Kounde, sem er 22 ára, hafi þegar náð munnlegu samkomulagi við Chelsea um kaup og kjör. Hann ætli þó ekki að þrýsta á að vera seldur.
Athugasemdir
banner
banner