Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mán 24. september 2018 12:00
Ívan Guðjón Baldursson
Evra kúkaði í skóna hans Pique
Mynd: Getty Images
Patrice Evra er mikill grínisti og er afar vinsæll hjá stuðningsmönnum hvert sem hann fer.

Tími hans hjá Manchester United var frábær, þar sem hann vann titla með félaginu og hjörtu stuðningsmanna í leiðinni.

Evra var í spjallþætti í breska sjónvarpinu og rifjaði þar upp grín sem gekk of langt frá tíma sínum hjá Rauðu djöflunum.

Gerard Pique kveikti í skónum hans Evra, sem var ekki skemmt, og ákvað Frakkinn að hefna sín. Hann tók upp á því að taka æfingaskóna hans Pique með sér inn á klósettið til að kúka í þá.

„Þeir brenndu æfingaskóna mína. Það var ekki fyndið. Það var Gerard Pique sem brenndi þá, og hvað gerði ég til að hefna mín? Ég tók skóna hans með mér á klósettið og kúkaði í þá," sagði Evra við mikil hlátrasköll.




Athugasemdir
banner
banner
banner