Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   mán 24. september 2018 20:29
Ingólfur Páll Ingólfsson
Modric þakkaði Davor Suker og liðsfélögum sínum fyrir sigurinn
Luka Modric var auðmjúkur í ræðu sinni í kvöld.
Luka Modric var auðmjúkur í ræðu sinni í kvöld.
Mynd: Getty Images
Luka Modric var í kvöld kjörinn leikmaður ársins af FIFA en hann er vel að titlinum kominn.

Modric hélt stutta ræðu í kjölfarið og þakkaði hann liðsfélögum sínum fyrir hjálpina ásamt því að óska Ronaldo og Salah til hamingju með sinn árangur.

Það er ótrúlegur heiður og falleg tilfinning að standa hérna með þessa æðislegu verðlaun. Ég vil fyrst af öllu óska Mohamed og Cristiano til hamingju. Ég er viss um að í framtíðinni munuð þið eiga möguleika á að berjast aftur um verðlaunin,” sagði Modric.

Þessi verðlaun eru ekki bara mín. Þau eru líka fyrir liðsfélaga mína hjá Real Madrid og Króatíu. Án þjálfara minna hefði ég ekki unnið þetta. Án fjölskyldu minnar væri ég ekki sá leikmaður sem ég er í dag.”

Þá þakkaði hann Davor Suker og landsliði Króatíu sem nældi í brons á HM 1998 auk þess sem Modric nefndi að allir gætu náð árangri með smá ákveðni.

Ég vil bara nefna átrúnaðargoð mitt og fyrirliða Króatíu árið 1998. Hann var mitt helsta átrúnaðargoð og það lið gaf okkur trú á að við gætum gert eitthvað í Rússlandi. Þessi verðlaun sína að við getum öll orðið best með því að leggja hart að okkur. Allir okkar draumar geta orðið að veruleika," sagði Modric.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner