Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 25. mars 2021 15:52
Magnús Már Einarsson
EM U21: Rann og skoraði sigurmarkið gegn Englandi
Svisslendingar fagna marki í dag.
Svisslendingar fagna marki í dag.
Mynd: Getty Images
England 0 - 1 Sviss
0-1 Dan Ndoye ('77)

England tapaði 1-0 gegn Sviss í fyrsta leik liðanna í lokakeppni EM U21 liða í dag.

Dan Ndoye, framherji Nice, í Frakklandi skoraði eina markið í síðari hálfleiknum.

Ndoye átti þá skot frá vítateigslínu sem fór yfir Aaron Ramsdale í marki Englendinga. Ndoye rann þegar hann var að skjóta á markið en boltinn hafnaði í bláhorninu.

Byrjunarlið Englands: Ramsdale, Aarons, Godfrey, Guehi, Kelly, Davies, Skipp, Hudson-Odoi, Smith-Rowe, McNeil, Nketiah.

Athugasemdir
banner