Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
   fim 25. mars 2021 06:00
Aksentije Milisic
Ungur leikmaður Lazio látinn
Mynd: Getty Images
Það ríkir sorg hjá Lazio eftir hörmulegt andlát hins 19 ára gamla Daniel Guerini.

Guerini var leikmaður hjá unglingaliði Lazio en hann fagnaði 19 ára afmæli sínu á sunnudaginn síðasta. Hann lést í bílslysi í gærkvöldi.

Guerini var í bíl með tveimur öðrum vinum sínum en þeir eru í lífshættu. Bifreið þeirra lenti í árekstri Mercedes Class A bifreið sem 68 ára gamall maður var að keyra.

Guerini átti leiki fyrir yngri landslið Ítalíu en hann fæddist í Róm. Hann hafði þá leikið fyrir unglingalið Torino, Fiorentina og SPAL.
Athugasemdir
banner
banner
banner