Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
   fös 26. mars 2021 16:30
Magnús Már Einarsson
Zlatan: Leið eins og þetta væri fyrsti landsleikurinn
Mynd: Getty Images
Zlatan Ibrahimovic spilaði sinn fyrsta landsleik með Svíþjóð síðan árið 2016 þegar liðið lagði Georgíu 1-0 í gær.

Hinn 39 ára gamli Zlatan hefur skorað 62 mörk í 113 leikjum fyrir Svíþjóð.

Hann náði ekki að bæta við marki í gær en lagði upp sigurmarkið fyrir Viktor Claesson.

„Tilfinningin var góð. Mér leið eins og þetta væri fyrsti landsleikurinn minn. Það var mikið adrenalín," sagði Zlatan eftir leik.

„Ég hefði getað gert mun meira en við unnum leikinn og það er mikilvægast."
Athugasemdir
banner
banner
banner