Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 26. ágúst 2021 13:30
Hafliði Breiðfjörð
Skellti kærustunni á bakið og bar hana af velli
Nadejda ber kærustuna af velli í gær.
Nadejda ber kærustuna af velli í gær.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það þekkja kannski sumir lesendur lagið 'He ain't heavy, he's my brother' sem Hollies gerðu ódauðlegt í gamla daga. Það hefði kannski átt vel við að skella því undir nálina á Origo-vellinum að Hlíðarenda í gær.

Lestu um leikinn: Valur 6 -  1 Tindastóll

Laura-Roxana Rus, rúmenskur leikmaður Tindastóls meiddist um miðjan fyrri hálfleikinn og eftir að leikurinn hafði verið stopp í nokkrar mínútur varð ljóst að hún varð að fara af velli og fá skiptingu.

Einhverra hluta vegna virðist sem börur hafi annað hvort ekki verið tiltækar eða fólk hafi ekki nennt að bíða eftir þeim og tók því við skrítin atburðarrás.

Hin Moldóvska Nadejda Colesnicenco sem er kærasta hennar greip þá til sinna ráða, skellti Laura-Roxana Rus á bakið og bar hana af velli en mynd af þessu má sjá með fréttinni.

Ekki er enn ljóst hversu alvarleg meiðslin eru en beðið er niðurstöðu með það.


Athugasemdir
banner
banner
banner