Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 26. desember 2020 18:30
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu atvikin: Walcott í rangstöðu - Mings rekinn útaf
Mynd: Getty Images
Það fóru tveir leikir fram á sama tíma í ensku úrvalsdeildinni í dag þar sem tíu leikmenn Aston Villa lögðu Crystal Palace að velli á meðan Fulham gerði markalaust jafntefli við Southampton.

Það voru tvö sérlega umdeild atvik sem áttu sér stað, eitt í hvorum leik, og má sjá þau hér fyrir neðan.

Fyrra atvikið er úr viðureign Aston Villa og Crystal Palace þar sem Tyrone Mings fékk tvö gul spjöld í fyrri hálfleik. Fyrra gula spjaldið var fyrir heldur litlar sakir, eða í raun alls engar sakir eins og er hægt að sjá með að smella hér.

Seinna atvikið er úr leik Fulham og Southampton þar sem gestirnir voru nálægt því að stela sigrinum undir lokin, gegn gangi leiksins. Theo Walcott kom knettinum í netið en VAR skar sig í leikinn og úrskurðaði að Shane Long, sem lagði markið upp, væri rangstæður. Rangstöðumarkið má sjá með að smella hér.
Athugasemdir
banner
banner
banner