Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 27. apríl 2021 20:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
England: Gífurlega mikilvægur sigur hjá Blackpool
Daníel er frá vegna meiðsla á öxl
Daníel er frá vegna meiðsla á öxl
Mynd: Getty Images
Blackpool van gífurlega sterkan 0-1 útisgur á Sunderland í baráttunni um umspilssæti í ensku C-deildinni, League One.

Blackpool er í baráttu við Sunderland, Portsmouth, Oxford og Charlton. Portsmouth og Charlton gerðu jafntefli í sínum leikjum í kvöld.

Sullay Kaikai skoraði eina mark leiksins á 56. mínútu. Daníel Leó Grétarsson lék ekki með Blackpool vegna axlarmeiðsla.

Blackpool er í 5. sæti, þremur stigum fyrir ofan Oxford sem er í 7. sætinu. Liðin í þrjiðja til sjötta sæti deildarinnar fara í umspil. Blackpool á auk þess leik til góða þegar tvær umferðir eru eftir.

Peterborough leikur þessa stundina gegn Doncaster og sigri Peterborough í leiknum þá er liðið öruggt með sæti í Championship deildinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner