Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 27. ágúst 2022 18:18
Brynjar Ingi Erluson
Barcelona búið að skrá Kounde í hópinn - Verður með á morgun
Jules Kounde
Jules Kounde
Mynd: EPA
Franski miðvörðurinn Jules Kounde er kominn með leyfi til þess að spila með Barcelona gegn Real Valladolid í spænsku deildinni á morgun en þetta staðfesti félagið í dag.

Barcelona keypti Kounde frá Sevilla undir lok síðasta mánaðar fyrir um það bil 50 milljónir evra.

Hann var ekki með liðinu í fyrstu tveimur leikjum deildarinnar þar sem Börsungar gátu ekki skráð hann í leikmannahópinn vegna reglna um launaþak.

Félagið hefur verið í miklu brasi með að skrá inn nýja leikmenn síðustu tvö ár eða síðan launaþakið var sett á. Rekstur félagsins hefur gengið illa en félagið hefur þó haldið áfram að kaupa leikmenn og um leið selt hluta af sjónvarpsrétti sem og hlut í öðrum eignum.

Barcelona hefur nú staðfest að Kounde hefur nú verið skráður í hópinn og getur hann verið með liðinu gegn Real Valladolid í spænsku deildinni á morgun.
Athugasemdir
banner
banner
banner