Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
   lau 27. ágúst 2022 14:40
Ívan Guðjón Baldursson
Engar viðræður á milli Napoli og Ronaldo
Mynd: Getty Images

Luciano Spalletti þjálfari Napoli var spurður út í orðróm sem segir Cristiano Ronaldo vera í viðræðum um félagsskipti til Napoli.


Orðrómurinn hermir að Manchester United sé að reyna að skipta Ronaldo við Victor Osimhen, framherja Napoli, en Spalletti segir ekkert vera til í þessu.

„Ég væri auðvitað mjög mikið til í að vinna með Cristiano Ronaldo en það eru engar viðræður. De Laurentiis (forseti Napoli) sagði mér að hann hafi ekki heyrt neitt um þetta nema í fjölmiðlum," sagði Spalletti.

„Þetta yrði erfið leikmannaskipti en þið ættuð að spyrja Giuntoli, yfirmann fótboltamála hjá okkur, frekar."


Athugasemdir
banner
banner