Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 27. nóvember 2019 20:32
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Skellur fyrir Liverpool: Mark Mertens stendur - Fabinho meiddur af velli
Mynd: Getty Images
Liverpool fer ekki glæsilega af stað í leik sínum gegn Napoli í Meistaradeildinni. Liðið hefur fengið tvö kjaftshögg og fyrri hálfleikur um það bil hálflnaður.

Á 19. mínútu þurfti Fabinho að fara af velli vegna meiðsla. Gini Wijnaldum kom inn á í stað Fabinho.

Á 21. mínútu leiksins kom seinna kjaftshöggið, það var í raun tvöfalt. Virgi van Dijk meiddist eftir skallaeinvígi við Dries Mertens við miðlínuna, Van Dijk er þó ekki alvarlega meiddur, hann heldur leik áfram.

Mark Napoli kom einnig á 21. mínútu, Giovani Di Lorenzo átti flotta sendingu innfyrir vörn Liverpool sem Mertens náði til og setti fram hjá Alisson í marki Liverpool.

Markið var skoðað í VAR og dæmt gott og gilt. Undarlegt atvik átti sér þó stað því markið var skoðað aftur eftir að það var dæmt gott og gilt. Markið stendur og Liverpool því 0-1 undir á heimavelli.

Markið má sjá hér.
Athugasemdir
banner
banner
banner