Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
banner
   sun 27. desember 2020 18:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ítalía: Birkir byrjaði í tapi Brescia - Hólmbert ekki með
Birkir Bjarnason.
Birkir Bjarnason.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Landsliðsmaðurinn Birkir Bjarnason var í byrjunarliði Brescia þegar liðið tapaði fyrir Empoli í ítölsku B-deildinni í dag.

Staðan var 2-1 í hálfleik fyrir Empoli, en Brescia minnkaði muninn rétt fyrir leikhlé. Brescia komst hins vegar ekki lengra og vann Empoli leikinn 3-1.

Birkir var tekinn af velli á 77. mínútu en hann var að spila sinn sjöunda deildarleik á tímabilinu. Hólmbert Aron Friðjónsson hefur ekki enn spilað fyrir Brescia en hann hefur verið að glíma við erfið meiðsli.

Brescia er í 11. sæti ítölsku B-deildarinnar með 18 stig eftir 15 leiki spilaða.

Sjá einnig:
Ítalía: Bjarki og Óttar spiluðu gegn toppliðinu
Athugasemdir
banner
banner
banner