Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
   sun 28. júní 2020 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Muller bætti met De Bruyne
Thomas Muller.
Thomas Muller.
Mynd: Getty Images
Thomas Muller stendur alltaf fyrir sínu og stundum gott betur en það. Í gær bætti hann stoðsendingamet þýsku úrvalsdeildarinnar.

Muller lagði upp og skoraði þegar Bayern vann 4-0 útisigur á Wolfsburg í lokaumferð þýsku úrvalsdeildarinnar.

Stoðsending Muller í gær var númer 21 hjá honum í deildinni á leiktíðinni og bætti hann þar með met Kevin de Bruyne, núverandi leikmanns Manchester City. De Bruyne lagði upp 20 mörk tímabilið 2014/15 með Wolfsburg.

Fyrra met Muller kom tímabilið 2016/17 þegar hann lagði upp 16 mörk.

Muller er þrítugur að aldri.


Athugasemdir
banner
banner
banner