Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 28. júní 2020 08:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Myndband: Mitrovic slapp við rautt spjald
Aleksandar Mitrovic.
Aleksandar Mitrovic.
Mynd: Getty Images
Leeds United vann 3-0 sigur á Fulham þegar liðin mættust í Championship-deildinni í gær.

Þetta var mikilvægur sigur fyrir Leeds sem stefnir á að komast upp í ensku úrvalsdeildina á nýjan leik. Leeds færðist þarna nær markmiði sínu.

Sóknarmaðurinn Aleksandar Mitrovic spilaði allan leikinn fyrir Fulham, en hann hefði líklega ekki átt að gera það. Hann átti líklega bara að fjúka út af í byrjun leiksins.

Eftir tæpar tvær mínútur gaf Mitrovic leikmanni Leeds ljótt olnbogaskot.

Myndband af þessu má sjá hér að neðan. Líklega verðskuldaði þetta rautt spjald.


Athugasemdir
banner
banner
banner