Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 28. ágúst 2021 11:29
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Thiago Silva sár út í PSG
Mynd: Getty Images
Hinn 35 ára gamli Sergio Ramos skrifaði undir tveggja ára samning við PSG í sumar.

Thiago Silva leikmaður Chelsea yfirgaf PSG í fyrra og samdi við Chelsea. Hann segist vera sár út í PSG eftir komu Ramos til félagsins.

„Ég hef ekkert á móti Sergio Ramos, en á þeim tíma sem honum var boðið tveggja ára samning var hann jafn gamall og ég var í fyrra. Svo ég varð mjög sár. Ég hef ekki talað um það við neinn af því það gerði mig mjög sorgmæddann af því mér fannst ég ekki hafa gert neitt fyrir félagið."

"Ég var ekki þarna í 8 daga eða 8 mánuði, ég var þarna í 8 ár. Vann mikið og gerði mikið til að koma liðinu á þann stað sem það er í dag. Ég vil að PSG vinni af því að félagið á alla virðingu skilið. En eins og hlutirnir fóru þá er ég sár og finnst eins og þetta hefði geta farið öðruvísi."
Athugasemdir
banner
banner