Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 28. ágúst 2022 13:22
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Lage: Þurfum framherja eins og Mitrovic og Haaland
Mynd: Getty Images

Wolves er aðeins með eitt stig eftir fyrstu þrjá leikina í deildinni. Liðið hefur aðeins skorað eitt mark en það gerði Daniel Podence í 2-1 tapi gegn Leeds í fyrstu umferð.


Liðið er bara með einn eiginlegan framherja í Raul Jimenez og eðlilega er Bruno Lage stjóri liðsins ekki hrifinn að því.

„VIð getum ekki byrjað úrvalsdeildina aðeins með einn framherja en það er raunveruleikinn. Það er lexía sem við lærðum á síðustu leitíð."

„Ef þú skoðar önnur lið. Mitrovic hefur skorað fjögur mörk og Haaland skoraði þrennu í gær, við þurfum eitthvað svoleiðis. Raul er frábær leikmaður en við þurfum einn í viðbót til að skora mörk," sagði Lage fyrir leikinn gegn Newcastle sem hófst kl 13.


Athugasemdir
banner