Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 29. febrúar 2020 11:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sjáðu mark sem gerir tilkall til Puskas verðlaunanna
Jordan Flores (til vinstri) í æfingaleik með Wigan gegn Liverpool árið 2017.
Jordan Flores (til vinstri) í æfingaleik með Wigan gegn Liverpool árið 2017.
Mynd: Getty Images
Í gær mættust Shamrock Rovers og Dundalk í írsku úrvalsdeildinni. Shamrock sigraði leikinn 3-2 en leikurinn var uppgjör toppliðana.

Shamrock situr nú eitt á toppi deildarinnar með fullt hús stiga. Jordan Flores jafnaði leikinn í fyrri hálfleik með frábæru marki eftir hornspyrnu.

Flores smellhitti hornspyrnu frá hægri og þrumaði knettinum í fjærhornið. Markvörðurinn átti aldrei möguleika en sjón er sögu ríkari.

Myndband af markinu má sjá hér að neðan.



Athugasemdir
banner
banner