Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fim 29. apríl 2021 21:38
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu atvikið: Átti Cavani að fá vítaspyrnu?
Mynd: Getty Images
Edinson Cavani átti stórleik er Manchester United valtaði yfir Roma í undanúrslitum Evrópudeildarinnar í kvöld.

Man Utd komst yfir snemma leiks en Roma sneri til baka og leiddi 1-2 í leikhlé.

Rauðu djöflarnir voru betri aðilinn og nýttu færin sín í síðari hálfleik. Cavani skoraði tvennu á fyrstu tuttugu mínútum síðari hálfleiksins og var staðan þá orðin 3-2.

Skömmu síðar fékk Cavani dæmda vítaspyrnu og brást Bruno Fernandes ekki bogalistin af punktinum. Vítaspyrnudómurinn er þó nokkuð umdeildur þar sem Chris Smalling virðist brjóta á Cavani þegar þeir eru báðir komnir útaf vellinum og ekki í sérstakri stöðu til að hafa áhrif á leikinn.

Sjáðu atvikið
Athugasemdir
banner
banner