Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 29. maí 2021 08:30
Brynjar Ingi Erluson
Barcelona opið fyrir því að selja Coutinho
Philippe Coutinho aftur til Englands?
Philippe Coutinho aftur til Englands?
Mynd: Getty Images
Spænska félagið Barcelona er tilbúið að hlusta á tilboð í Philippe Coutinho í sumar en Fabrizio Romano, íþróttafréttamaður á Sky Italia, segir frá þessu á Twitter.

Brasilíumaðurinn kom til Barcelona frá Liverpool í janúar árið 2018 en það ævintýri hefur ekki farið eins og hann hefði viljað.

Hann var afar slakur þegar hann kom til félagsins og var lánaður til Bayern München ári síðar.

Coutinho gerði ágætis hluti í Þýskalandi en snéri aftur fyrir þetta tímabil. Hann náði aðeins að spila 14 leiki og skora 2 mörk áður en hann meiddist í lok desember.

Barcelona ætlar að hlusta á tilboð í Coutinho í sumar til að fjármagna kaup á öðrum leikmönnum en Arsenal er ekki í myndinni samkvæmt Romano.

Liverpol hefur verið áhugasamt um að fá hann aftur fyrir rétt verð en Chelsea og Manchester United hafa einnig sýnt áhuga.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner