Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 29. maí 2021 10:29
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Heimild: Mirror 
Liverpool ætlar að framlengja samninga sex leikmanna
Mynd: Getty Images
Ibrahima Konate skrifaði undir samning hjá Liverpool í vikunni eftir komu frá RB Leipzig. Liverpool ætlar ekki að næla sér í Ozan Kabak en talið er að hann taki við af Konate hjá RB Leipzig.

Klopp vonast eftir því að Virgil van Dijk, Joe Gomez og Joel Matip verði tilbúnir frá upphafi næsta tímabils en þeir hafa allir verið að kljást við langvarandi meiðsli.

Mirror greinir frá því að Liverpool muni einbeita sér að því að framlengja samninga sex leikmanna liðsins.

Mikilvægasti varnarmaður liðsins, Virgil van Dijk er þar efstur á blaði. Markvörðurinn Alisson Becker, bakverðirnir Trent Alexander-Arnold og Andy Robertson, Fabinho og Mo Salah eru einnig taldir skrifa undir nýjan samning hjá Liverpool.

Liðið tryggði sér sæti í Meistaradeild Evrópu þegar þeir enduðu í 3.sæti deildarinnar eftir dramatíska loka umferð um síðustu helgi og er talið að það hjálpi liðinu mikið við að semja við þessa leikmenn.
Athugasemdir
banner
banner