Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 29. maí 2021 08:00
Brynjar Ingi Erluson
Oscar heitur fyrir því að spila aftur með Chelsea
Oscar
Oscar
Mynd: Getty Images
Brasilíski sóknartengiliðurinn Oscar fer ekki leynt með ást sína á Chelsea en hann vill ganga til liðs við félagið eftir að samningur hans við Shanghai Port klárast.

Oscar er 29 ára gamall í dag og hefur verið besti maður kínversku deildarinnar síðan hann kom þangað frá Chelsea árið 2017.

Hann spilaði með Chelsea í fjögur og hálft ár og var í miklum metum hjá stuðningsmönnum félagsins en hann hefur opinberlega rætt um áhuga sinn á að snúa aftur.

Samningur hans í Kína gildir til 2024 en hann væri til í að snúa aftur til Chelsea þá.

„Ég held að ég fái tækifæri. Ég vona að ég geti haldið áfram að spila eins og ég er að spila í dag, þá koma tækifærin. Ég er í góðu sambandi við Chelsea og er mjög hrifinn af klúbbnum og stuðningsmönnunum. Þannig þegar samningur minn klárast þá mun ég klárlega íhuga það að fara þangað," sagði Oscar við Goal.com.
Athugasemdir
banner
banner